Fćrsluflokkur: Menning og listir
Endur-sögur
2.11.2008 | 21:56
Hér er ađ renna úr hlađi ţátturinn ; Endur-sögur... kem til međ ađ birta eldri sögur sem ég hef áđur birt á á blogginu... hér kemur sú fyrsta:
Berjamađurinn.
... einu sinni var mađur sem hafđi yndi af ţví ađ fara í berjamó...
Berjatíminn á Íslandi er stuttur... kannski fjórar vikur eđa svo...
Í ágúst og fram í fyrstu frost í september..
Yfir vetrartímann skođađi hann myndir af berjamóaferđum sínum frá
árinu áđur, borđađi bláberjasultu međ ostum og drakk berjasaft međ...
Berjasaftin var samt ekki venjuleg berjasaft eins og ţú og ég ţekkjum hana...
Berjamanninum hafđi tekist ađ búa til eđalvín úr krćkiberjum og bláberjum...
17% sterkt vín...
.
.
Hann var ţví oft rallhálfur ađ skođa myndirnar sínar og merkja inn á GPS
stađsetningartćkiđ sitt hvar bestu stađirnir voru... hann passađi sig alltaf
á ţví ađ leggja bílnum langt frá ţeim stađ ţar sem hann tíndi berin...
Enginn mátti vita hvar besta berjalandiđ var...
Hann notađi ekki berjatínu, ţađ var glćpur, sambćrilegur viđ ţađ hjá veiđimönnum og ađ húkka laxinn... menn sem húkka lax eru ekki hátt skrifađir hjá öđrum veiđimönnum...
Einu sinni ţegar okkar mađur var búinn međ fulla flösku af berjavíni og var
orđinn rjóđur í framan, var bankađ á útidyrnar... berjamađurinn stakk upp í
sig Carr's tekexi og ostbita međ bláberjasultu ofaná... hélt á flösku númer tvö í hendinni og tappatogara og fór til dyra...
.
.
Fyrir utan voru tveir snyrtilegir ungir menn ađ selja Jesúsblöđ... viljiđ ţiđ
ekki koma inn strákar og fá ykkur berjavín međ mér; sagđi berjamađurinn
Ungu mennirnir skildu ekkert í íslensku, en gátu ţó sagt; "fimmhundruđ krónur"...
Nei, nei, sagđi okkar mađur... ţađ kostar ekki neitt... komiđ ţiđ bara inn á
skónum og smakkiđ á ţessu víni međ mér... drengirnir skildu bendingar mannsins
og gengu inn í stofu... berjamađurinn hellti í glös fyrir ţá og sagđi;
Skál, drengir!
Síđan sýndi hann ţeim myndirnar úr berjamónum og ţeir sýndu honum á móti Jesúsblöđin.
.
.
Ţiđ eruđ frábćrir, strákar, sagđi berjamađurinn viđ trúbođana... nú komiđ ţiđ bara
next autumn og pikkiđ nokkur berries with me... but you may only use your naked hands...nó machines!
If you do that, then I can sell Jesus papers for you... OK?
.
.
Ţetta var sagan um ţađ ţegar berjamađurinn gerđist trúbođi.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:15 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)