Ég er tapsár !

Jæja... við töpuðum 2-0... ég er svekktur og reiður og pirraður... út í dómarann...

Meira seinna.

.

angry_cow
.


mbl.is Sanngjarn sigur Liverpool á Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svektur út í dómarann, fyrir að dæma ekki víti og annað gula spjaldið á Berbatov þegar hann reif Kuyt niður. Þið United menn getið sko ekki kvartað yfir dómaranum frekar en vanalega. Rooney og Giggs virtust bara getað pantað dóma að vild. Þínir menn voru bara einfaldlega yfirspilaðir.

Sigurður (IP-tala skráð) 25.10.2009 kl. 17:10

2 Smámynd: Hjörtur Herbertsson

Hver sér boltann með sýnum augum. sem er eins gott, því ekki get ég verið sammála Sigurði þegar hann segir að Berbatov hafi rifið Kuyt niður. Mín augu sáu þá nefnilega toga í peysu hvors annars, og var Berbatov nær falli áður en Kuyt féll, þar sem Kuyt var nær búinn að draga hann niður, en féll á eiginn bragði, á að dæma víti á svoleiðis? Ó nei ó nei. En það hefði frekar mátt dæma víti hinu meginn á vellinum þegar að Carrick að mig minnir var feldur inn í teig. Ég verð að vera sammála Bratti, um að vera pirraður út í  dómarann, sem var ekki að vinna vinnuna sína, t.d. þegar Carracher felldi Owen, ég hélt að þegar að aftasti maður fellir sóknarmann, þá sé það beint rautt, að minsta kosti fékk Vidic beint rautt í fyrra þegar hann felldi Torres.

Hjörtur Herbertsson, 25.10.2009 kl. 17:39

3 identicon

Nei..  vidic fékk sitt annað gula spjald þegar hann braut af sér.... ekki beint rautt.

stebbi (IP-tala skráð) 25.10.2009 kl. 17:59

4 Smámynd: Brattur


Carrick átti að fá víti þegar hann var straujaður í teignum.

Carracher átti að fá rautt þegar hann felldi Owen.

Torres átti að fá gult spjald fyrir leikaraskap þegar hann felldi sjálfan sig.
Og nokkur gul hefði hann mátt fá í viðbót fyrir að henda sér alltaf í grasið þegar komið var við hann.... þvílíkur leikari...

Atvikið með Berbatov og Kuyt var bara peysutog á báða bóga og skringilegt hjá Arnari Björnssyni að segja að það hafi verið "púra" víti.
Annars var lýsing Arnars mjög skrítin... og dró hann taum Liverpool allan leikinn...

En OK United voru ekki að spila vel og fúlt að tapa fyrir lélegu Liverpool liði...

Dómaragreyið var víst að dæma sinn stærsta leik á ævinni og féll á prófinu.

Brattur, 25.10.2009 kl. 18:20

5 Smámynd: Óskar Þorkelsson

ertu ekki annars bara Brattur ?

Óskar Þorkelsson, 25.10.2009 kl. 18:22

6 Smámynd: Brattur

Jú Óskar... bara helv... Brattur... það kemur dagur eftir þennan dag...

Hvernig segir maður annars Brattur á norsku ?

Brattur, 25.10.2009 kl. 18:23

7 identicon

Það er í besta falli hjákátlegt þegar sameinaðir fótboltamenn frá Manchester borg væla yfir dómgæslu.

Linda (IP-tala skráð) 25.10.2009 kl. 19:04

8 identicon

Mikið er yndislegt að lesa þetta hjá þér... fullkomnar daginn alveg! Þú ert svo innilega bitur hehehe Höndlið bara ekki þessa RISA leiki á móti Liverpool... hafið ekki unnið okkar lið síðan 2007 hehehe það segir sitt. En haltu áfram að blogga um dómarann... hehe mjög gaman að lesa þessar afsakanir hehe

Frelsisson (IP-tala skráð) 25.10.2009 kl. 19:18

9 Smámynd: Óskar Þorkelsson

er du ikke bratt ellers  Bratt ;)

Óskar Þorkelsson, 25.10.2009 kl. 19:26

10 Smámynd: Brattur

Leit nú ekki á þetta sem RISA leik Frelsisson frekar en ég leit á leikinn við Burnley...

Brattur, 25.10.2009 kl. 19:34

11 Smámynd: Jón H B

Frelsisson er sannur púlari, metnaður þeirra dugar í sigur á MAN UTD og síðan enda í 3-6 sæti í deild þá eru allir sáttir :D

Jón H B, 26.10.2009 kl. 13:22

12 identicon

Þvílík biturð. Maður fær sæluhroll við þessa lesningu. Hættið að apa eftir ferguson og kenna dómaranum um.

Þið töpuðuð gegn liði sem var betra í þessum leik, ekki flókið.

Rúnar Geir (IP-tala skráð) 26.10.2009 kl. 18:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband