Ég er líka móðgaður

Mér fannst Davíð vega ómaklega að Ö flokknum í ræðu sinni... hann minntist ekki einu orði á Önd-vegis-flokkinn í ræðu sinni...

Hann hefði nú geta sagt að Önd-vegis-flokkurinn og formaður hans liti út eins og kálfur eða eitthvað í þá veruna... vond auglýsing er betri en enginn... ég er bara fúll eins og Villi.

En það er algjör dásemd að sjá sundraða Sjálfstæðismenn þessa dagana. Þeir þurfa enga andstæðinga... þeir sjá um þetta sjálfir og skemmta landanum í leiðinni...

Ég held þeir endi bara í 11-12% í næstu kosningum, verði minni en Framsókn... þá ætla ég að skjóta upp flugeldum og baka pönnukökur.
.

 firework_1327

.


mbl.is Geir: Ómaklegt hjá Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Og hjá mér mun súkkulaðið flæða.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 29.3.2009 kl. 14:27

2 Smámynd: Guðni Már Henningsson

Þessi landsfundur er dásamlegur, sérstaklega var gaman að frétta af því að Kristur væri mættur aftur. Ég var að fá nýjustu skoðanakönnunina og þar kemur fram að  Önd-vegis-flokkurinn er orðinn stærri en Sjálfstæðisflykkið... Nú er ekkert annað en Brattsýni framundan... ég held að sé orðið óhætt að panta möööööörgæsirnar.

Gvööööðni

Guðni Már Henningsson, 29.3.2009 kl. 14:28

3 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Guðni þó!  Ég sem hélt að þú værir innmúraður eins og....

 Dásamlegur ertu!

Ingibjörg Friðriksdóttir, 29.3.2009 kl. 14:32

4 Smámynd: Brattur

Guðni... þú verður kosningastjórinn minn, er það ekki vinur?... hvað heldur þú að ég ætti að panta margar mörgæsir í fyrstu pöntun? Viltu tala við tollinn í fyrramálið og spyrja í hvaða tollflokk mörgæsir fara...

Ö er ekki Bö !!!

Brattur, 29.3.2009 kl. 14:34

5 Smámynd: Guðni Már Henningsson

Ég er upp með mér!!! Og þegar þú ert orðinn stroffískytta, senter og fyrirliði skal ég  verða tollstjóri. Mööööörgæsirnar verða settar í sérstakan tollflokk sem er ekki til núna en með hverri möööörgæs fylgir snekkja og bílar sem hægt er að geyma í geymslu. Eina kvöðin sem mun fylgja möööörgæsunun er að þær mega ekki fljúga.

Guðni Már Henningsson, 29.3.2009 kl. 14:56

6 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég pant fá að vera prótókollsjeff eða siðameistari.  Ég mun sjá í gegn um fingur mér þegar það á við..........  Má ég annars vera memm?

Ingibjörg Friðriksdóttir, 29.3.2009 kl. 15:05

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Pant vera góði mörgæsahirðirinn. 

Anna Einarsdóttir, 29.3.2009 kl. 16:31

8 identicon

Þú ert brattur, Brattur.

rólegi kallinn (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 16:44

9 Smámynd: Brattur

Kæru landsfundarfulltrúar... nú höfum við á lýðræðislegan hátt myndað forustusveit Ö flokksins...

Formaður, varaformaður og ritari: gvÖÖÖÐ Brattur.

Kosningastjóri og tollstjóri : GvÖÖÖðni Már.

Prótókellsjeff : IngibjÖÖÖrg.

Góði mÖÖÖrgæsahirðirinn : Anna the fÖÖÖn.

Yfirmaður óeirðalÖÖÖgreglu : Rólegi kallinn.

Góðir kjósendur, bÖÖÖlið burt með Önd-vegis-flokknum.

Önd-vegis-fólk til forustu.

Ö er ekkert BÖ!

Brattur, 29.3.2009 kl. 17:45

10 Smámynd: kop

Ég veit að þú verður sjálfur í 1. sæti í öllum kjördæmum landsins.

Nú ætla ég að bjóða mig fram í 1. sæti í utanlandskjördæmi fyrir Önd-vegis-flokkinn. Þetta er alveg nýtt og enginn hinna flokkanna hefur haft rænu á að sinna þessu kjördæmi.

kop, 29.3.2009 kl. 18:11

11 Smámynd: Brattur

Yesss... Ö flokkurinn alltaf fyrstur með nýjungar... vertu hjartanlega velkominn í hópinn Mr. Kop... þú verður utankjÖÖÖrstaða þingmaðurinn okkar og sérð um útrásina fyrir flokkinn... ég og félagarnir sem ég var að kynna hér að ofan sjáum um innrásina...

Svo er ég að semja nýtt lag fyrir flokkinn, þú mannst...

We always walk together...

Ö-flokkurinn fyrir landið... landið fyrir Ö-flokkinn...

Önd-vegis-flokkurinn grillar ekki bara á kvÖÖÖldin...

Brattur, 29.3.2009 kl. 18:22

12 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Gvöööööööööð hvað ég hlakka til!  We never walk alone, always together. Pant syngja milliröddina.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 29.3.2009 kl. 20:08

13 Smámynd: Guðni Már Henningsson

Brattsjónallinn.

Fram ööööðlingar í ótal lööööööndum

sem ástundiðá kvöldin karate

nú Brattur safnar saman bröööööndum

boðar kaffi og jurtate

Dabbahyski við hendum í sjóinn

hrööööökvum aldrei í kút

við áttum lóur en hann át þær kjóinn

einsog að þamba ööööööl af stút.

 

Þó að mööööörgæsin sé mööööögur

við möööööölvum Geirinn í dag

því Brattsýnin er fööööögur

og fóðurblanda allra í Haag.

Guðni Már Henningsson, 29.3.2009 kl. 22:23

14 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Guðni snillingur. 

Nú verður ekki aftur snúið.  Önd-vegis-flokkurinn rúllar. 

Anna Einarsdóttir, 29.3.2009 kl. 22:42

15 Smámynd: Brattur

Það held ég nú baráttusÖÖÖngurinn kominn og ekkert smá fagur... kærar þakkir Hr. kosningastjóri... í textanum kemur allt fram um baráttumál flokksins, allt um andstæðingana, allt um mig og allt um okkur...
Hvernig vissir þú Guðni að ég drykki karate?

Brattur, 29.3.2009 kl. 22:51

16 Smámynd: Guðni Már Henningsson

Ég var með það á hreinu að þú drykkir ekki glímutök!!!! Ö er ekki BÖ....

Guðni Már Henningsson, 29.3.2009 kl. 23:06

17 Smámynd: Steingrímur Helgason

Það andaðizt mitt auma frjálza atkvæði ...

Frá F Til Ö ...

Steingrímur Helgason, 29.3.2009 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband