Bestir í heiminum!

Jæja, þá erum "við" orðnir HEIMSMEISTARAR. Svo erum við náttúrulega Englandsmeistarar og Evrópumeistarar...

Þarf nokkur að efast lengur um það hvert er besta liðið í heiminum????

Eina sem United vantar ennþá er að verða Íslandsmeistarar!

.

 _45317587_rooney4_getty226x282

.


mbl.is Rooney tryggði Manchester United heimsmeistaratitilinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rétt hjá þér... ef frá eru taldir herrarnir á Anfield.

Kristinn Þór (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 16:30

2 Smámynd: Baldur Hermannsson

Til hamingju. Fyrir nokkrum mánuðum varð maður nokkur í Englandi svo reiður út í nokkra gaura sem kölluðu til hans að hann líktist Wayne Rooney  að hann stökk út úr bílnum og drap einn þeirra. Málaferlin standa yfir núna. ManU eru vissulega öflugt lið en þeir leika hvorki fallega né skemmtilega knattspyrnu. Hana er að finna á Emirates.

Baldur Hermannsson, 21.12.2008 kl. 18:56

3 Smámynd: Brattur

... jæja Baldur minn góður... svona ertu þá!... þarna greinir okkur verulega á... mér þykir Old Trafford fótboltinn sá langtum fallegasti og skemmtilegast.... og n.b. árangursríkasti...

Brattur, 21.12.2008 kl. 19:24

4 Smámynd: Baldur Hermannsson

Árangursríkur, ekki nokkur spurning. Þegar ég horfi á ManU leika finnst mér eins og ég sé að virða fyrir mér skriðdrekasveit sem öslar yfir allt sem fyrir verður. En listamennirnir eru á Emirates. Stundum eru þeir að vísu fullmiklir listamenn og ekki nógu miklir bardagajaxlar. Sanngjörn úrslit áðan þótt við hefðum vissulega viljað meira.

Baldur Hermannsson, 21.12.2008 kl. 19:31

5 Smámynd: Brattur

... hverjum þykir sinn fugl fagur... en gott hjá ykkur að hirða stig af Liverpool... held að keppnin um Englandsmeistaratitilinn verði grjóthörð í ár... og hef tröllatrú á mínum mönnum...

Brattur, 21.12.2008 kl. 19:53

6 Smámynd: Baldur Hermannsson

Það verður ManU eða Chelsea. Mínir menn eru brothættir, vörnin eins og gatasikti, við verðum sáttir við fjórða. Djourou og Gallas eru annars flokks. Báðir ættu að leika með Wigan eða Blackburn. Ég giska á að Liverpool og Arsenal láti dólgslega fram í mars en hvorugt hefur þann kraft sem þarf til að vinna ensku deildina.

Baldur Hermannsson, 21.12.2008 kl. 19:59

7 identicon

Baldur: Fótbolti er ekki list, fótbolti er íþrótt. Ef þeir eru listamenn í Arsenal þá ættu þeir að snúa sér að einhverju öðru en fótbolta.

Hjalti Þór Sveinsson (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 23:24

8 Smámynd: Baldur Hermannsson

Hjalti, þetta eru stór orð og hranaleg! Mér er alveg sama hvað hver segir, góðan fótbolta má vel telja til listgreina, ekkert síður en margt af því sem nú á dögum er kynnt og selt sem list.

Baldur Hermannsson, 21.12.2008 kl. 23:29

9 Smámynd: Brattur

... verð nú að taka undir orð Baldurs... mér finnst fótbolti list... ekkert verri eða betri en önnur list... en það getur verið unun að sjá góða boltatækni og flott samspil sem endar með marki... algjör list...

Brattur, 21.12.2008 kl. 23:58

10 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég tek undir orð síðueigandans, enda skjálgumzt við á með sumt í þezzu frá ekki ózwipiuðum glyrnum, þrátt fyrir að hann haldi með ~Samkynhneigðum Mannheztum~. 

Steingrímur Helgason, 22.12.2008 kl. 01:21

11 Smámynd: Gunnar Níelsson

Liverpool sem er sigursælasta félagslið Englands frá upphafi hefur ekki getað neitt í líklega 6 vikur en sitja nú samt á toppnum !

Ég sé nú ekki að aðrir hafi mikið í þá þegar þeir fara að spila aftur eins og menn :-)

Ergo Liverpool vinnur deildina og ekkert múður !

Gunnar Níelsson, 22.12.2008 kl. 13:16

12 Smámynd: Brattur

... Gunni minn... nú ertu farinn að rifja upp fornsögurnar... einhver sagði mér að það sé styttra síðan að Leeds voru Englandsmeistarar, en Liverpool... sel það ekki dýrara en ég rændi því... varð að minnast á þetta hér... finnst þetta svo skemmtilegur húmor...

Brattur, 22.12.2008 kl. 21:25

13 Smámynd: Baldur Hermannsson

Liverpool enn á toppnum því Chelsea gerði jafntefli við Everton. Rétt með Leeds - þeir unnu titilinn með Cantona og þóttust þá svo góðir að þeir þyrftu hans ekki lengur með og seldu hann. Svo kom fallið mikla.......

Baldur Hermannsson, 22.12.2008 kl. 21:58

14 Smámynd: Brattur

... United er þá í raun 1 stigi á eftir Liverpool og í öðru sæti... eiga 2 leiki inni sem báðir vinnast og svo er brautin bein...

Brattur, 22.12.2008 kl. 22:21

15 Smámynd: Baldur Hermannsson

.... hún er að vísu bein en gleymdu því ekki að Chelsea er á þessari sömu beinu braut ....... og ég hef meiri trú á Scolari en Benitez......

Baldur Hermannsson, 22.12.2008 kl. 22:23

16 Smámynd: Brattur

... já maður verður bara að hafa trú á sínum mönnum... enda ástæða til... Liverpool hefur ekki breiddina... það er ljóst... Arsenal líklega ekki heldur... hafa ekki varamenn eins og Giggs, Scholes, Fletcher, Neville...  þannig að þetta verður Chelsea - United einvígi... ekki spurning...

Brattur, 22.12.2008 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband