Svona er ég

Var að vinna út á landi í vikunni... dvaldi þar á gistiheimili...

Einn morguninn fór ég í sturtu eins og ég geri oftast á morgnana. Áður en ég fór í sturtuna fór ég úr sokkunum mínum hvítu eins og ég geri oftast áður en ég fer í sturtu.
.

 WhitePumaSock2

.

Ekkert bar til tíðinda meðan ég var í sturtunni, eða það hélt ég að minnsta kosti. Eftir að ég hafði þurrkað mig, klæddi ég mig... en þá fóru dularfullir atburðir að gerast... ég fann ekki annan hvíta sokkinn minn... það var ótrúlegt... hann var bara ekki í baðherberginu... þetta var augljóst... meðan ég var í sturtunni höfðu Marsbúar flogið inn um gluggann og stolið sokknum... hvað annað gat hafa gerst...
.
marsian

Ég fór mörgum sinnum yfir allt, en það var alveg á hreinu - sokkurinn var gufaður upp...

Jæja, það var ekki hægt að hugsa um það meira...  fór niður í morgunmat og heilsaði eina gestinum sem þar var... ábyggilega stýrimaður á varðskipi... hann var í einhverju júníformi... konunni  sem rekur gistiheimilið bauð ég einnig góðan daginn... kurteis maður ég...

Ég ristaði mér brauð, fékk mér te og djús og settist til borðs... þá sé ég útundan mér eitthvert hvítt skott sveiflast við hægri mjöðmina... þarna var þá bévítans sokkurinn... dinglandi eins og skott upp úr buxnastrengnum... ég var eins og kanína í gulrótargarði...
.

7520~Peek-a-Boo-I-Rabbit-Posters 

.

Ég fann að ég roðnaði í vöngum... tosaði sokkinn laumulega upp úr buxunum og stakk í vasann...

Annars var ristaða brauðið bara gott... teið líka og allur dagurinn...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Réttlát refzíng fyrir það eitt að ganga enn í hvítum 'strompzokkum'.

Steingrímur Helgason, 31.10.2008 kl. 22:49

2 Smámynd: Brattur

... já... ég viðurkenni það fúslega... það er hallærislegt að ganga í hvítum sokkum... en það er svo mikið í stíl við mig...

Brattur, 31.10.2008 kl. 23:01

3 Smámynd: Einar Indriðason

Þetta eru, held ég, ekki marsbúar, heldur sokkaálfar.

Einar Indriðason, 1.11.2008 kl. 09:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband