Líf eftir þetta...

... var að spekúlera ef ég fæddist aftur á þessari jörð og yrði þá annað hvort ávöxtur eða grænmeti, hvað vildi ég þá helst vera...

Kálhaus... neiiiii.... það lítur eitthvað svo illa út... held að þeir hugsi svo smátt...
Laukur... já, kemur til greina... laukur ættarinnar...
Rauðlaukur... já, ef ég væri indíáni...
Hvítlaukur... ef ég væri ekki svertingi...
Blaðlaukur...  eins og blaðamaður... ekki svo slæmt...
Banani... hmm... er það ekki svolítið apalegt...
Ástríðuávöxtur... af því að ég held með Man.United... nei... of óþjált...
Stjörnuávöxtur... nei... held það sé leiðinlegt að vera stjarna...
Agúrka.... nei, of auðvelt að uppnefna, er ekkert að frétta, bara gúrkutíð?
Plóma... svolítið krúttlegt
Melóna... ahh...
Nektarína... veit ekki... eins og maður sé alltaf klæðalaus...
Tómatur... þá yrði ég uppnefndur tómur..
Kartafla... þá yrði ég settur í skóinn fyrir jólin...
Sveppur... ekkert betra en kálhaus...
Villisveppur... miklu betra... enda ég svolítið villtur...
Cherry tómatur... ekki svo slæmt... ef ég væri róni


Avocado... líst vel á það... þá myndi ég kalla mig Greifinn af Avocado....

Já, gamli þarna uppi... ef þú ætlar að láta mig fæðast aftur... hafðu mig þá Avocado...

.

avocado

.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert aldeilis búinn að skemmta mér. Ég datt óvart inn á þitt blogg og las mig áfram aftur á bak en samt sat ég! Þá datt mér í hug að þú vissir manna best hvernig hugtakið "blátt áfram" varð til.

Megir þú lengi lifa.

Ragnheiður Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 10:31

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þetta er líklega alveg rétt, við fæðumst aftur sem grænmeti, ávöxtur eð einhver jurt!

Það var einn sem fékk ekki frið við að gróðursetja eða sá sjálfum sér til næsta lífs í góðu fjalllendi á dögunum.

Edda Agnarsdóttir, 26.7.2008 kl. 13:18

3 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 19:39

4 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þetta er eina nafnið sem þú hefur EKKI á íslensku, Brattur! What gives? Myndirðu ekki vilja vera... lárpera? 

Lára Hanna Einarsdóttir, 26.7.2008 kl. 21:20

5 Smámynd: Gunnar Níelsson

Brattur vinur minn getur þakkað fyrir að þú fékkst ekki sömu trakteringar og ég fékk frá syni mínum  í gær þegar ég kom stoltur heim  úr klippingu.  Stubbur sagði  að ég væri eins og Kíwi ! 

Humm getur svo sem passað m.v það sem ég "greiddi" fyrir klippinguna

Gunnar Níelsson, 26.7.2008 kl. 22:13

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Að spekúlera í því hvað maður verður í næsta lífi er ekkert annað en sóun á tíma í þessu lífi Brattur minn, en þar sem þú ert svona eitthvað svo mikill hugsuður, skil ég alveg að þú skulir hugsa um þetta. Ég hef til dæmis engar áhyggjur af því hvort ég verð fluga eða paprikka í næsta lífi og búinn að breyta síðunnni minni í samræmi við það.

Halldór Egill Guðnason, 27.7.2008 kl. 03:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband