Suðupotturinn, leikrit.

Þetta er leikrit um hjón sem heita Geirsvanur og Bjargey Björt.

Þau eiga þrjú börn, Hannes Hjartar , Bjarna Bljúg og Þorgerði Gerði.

Geirsvanur heyrir frekar illa. Hafði unnið í stálsmiðjum þegar hann var yngri og skemmdi þar í sér heyrnina.
Bjargey Björt er heldur ekki gallalaus. Hún er að mörgu leyti mjög fær en oft er hún fljótfær og hefur lent í mörgum raunum vegna þess.

.

hobbit_couple

.

Leikritið hefst kl. 17:00 á miðvikudegi.

Bjargey Björt kemur heim, sparkar af sér skónum og ríkur beint fram í eldhús án þess að klæða sig úr jakkanum.

Bjargey Björt kallar: Geirsvanur það sýður í potti á eldavélinni.

Gerisvanur : Ég held nú síður.

Bjargey Björt : Ertu að sjóða síður?

Geirsvanur : Ég held nú síður.

Bjargey Björt : Frakkinn sem þú keyptir í gær í Dressmann, finnst þér hann ekki vera of síður?

Geirsvanur : Ég held nú síður.

Bjargey Björt : Eigum við að fara í bíó í kvöld, Geirsvanur?

Geirsvanur : Ég vil það síður

Nú var farið að þykkna í Bjargey Björt yfir þessum einsleitu svörum Geirsvans.
Hún rauk inn í stofu þar sem Geirsvanur lá uppi í sófa og horfði upp í loftið.

.

 cooking_pot_-_clip_art

.

Í næsta þætti kemur svo í ljós hvort að sýður uppúr milli þeirra hjóna.
Hvað sagði Bjargey Björt við Geirsvan. Heyrði Gerisvanur ekki eins illa og hann vildi vera láta?
Talaði hann af sér?
Og hvað var það 
sem var í pottinum?
Borða þau saman?
Fer Bjargey Björt ein í bíó?
Og hvar eru blessuð börnin?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Skyldu þau gruna hvernig í pottinn er búið?

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 29.4.2008 kl. 22:01

2 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 22:20

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég bíð helspennt!!

Hrönn Sigurðardóttir, 29.4.2008 kl. 23:00

4 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég ætla ekki að reyna að svara þessum spurningum - Langar bara að segja að mé finnst þetta vera snilld.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 30.4.2008 kl. 15:21

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

...ég er alveg mát....

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 30.4.2008 kl. 20:10

6 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

Alltaf góður...

Agnes Ólöf Thorarensen, 30.4.2008 kl. 22:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband