Bankastjórinn

... jæja...

einu sinni var bankastjóri... hann var þessi venjulegi sem við könnumst svo vel við... um fertugt... kominn með smá kúlu og var með bollukinnar... hann notaði gleraugu, umgjörðin á þeim var svört og þykk...

... hann átti konu sem var ljóshærð...

Börnin voru tvö og svo áttu þau kínverskan hund sem leit út eins og köttur...

.

 11xm2

.

Það var ekki alltaf auðvelt að skilja bankastjórann, því hann var þvoglumæltur, hann talaði svipað og Megas væri að tala færeysku... með allri virðingu fyrir færeyingum, þeim góðu frændum okkar...

Bankastjórinn átti sér leyndarmál... hann hafði alltaf dreymt um að verða ballettdansari...

Í fallegu silfurlituðu boxi inn á skrifstofunni hans heima, átti hann ballettföt... þetta voru reyndar ekki hefðbundin ballettföt, heldur gamaldags, prúsknesk ballföt...

.

 62%20J.H.%20St%FCrmer%20Russ.%20Ballett%20012

.

... þegar konan hans fór á fund hjá Fondú systrum á hverju fimmtudagskvöldi, leyfði hann börnunum að taka mynd á leigu og keypti handa þeim bland í poka, þrjú kíló...

Síðan þegar börnin voru sokkin ofan í myndina og sælgætið, fór hann inn á skrifstofuna sína og náði í ballettkassann...

Kæddi sig í gallann og setti músík á spilarann...
Skemmtilegst þótti honum að dansa við "Die Geschöpfe des Prometheus op.43" eftir Beethoven.

 .... svo dansaði hann á parkettlögðu gólfinu eins og engill...

... og gleymdi gjörsamlega stýrivöxtunum sem hann hafði haft svo miklar áhyggjur af, fyrr um daginn...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Bara ekkert annað - þekkir þú marga bankamenn sem lesa bloggið þitt? Má mar fara búast við nýjum búningum á bankaliðið? Hvernig verðu kvenfólkið?

Edda Agnarsdóttir, 27.1.2008 kl. 18:59

2 Smámynd: Brattur

takk fyrir þetta, Helena... ekkert tómstundargaman finnst mér skemmtilegra en stangveiði... ...ég er fyrst og fremst silungsveiðimaður og veiði á flugur... stefni á það að kenna bestu vinkonu minni (sem þú þekkir!) að veiða í sumar, ég hlakka til þess...

.... ætla að kíkja á þessa þætti sem þú bendir mér á... 

Brattur, 27.1.2008 kl. 21:16

3 Smámynd: Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir

Varð nú bara forvitin um tónaflóð Prómþeifs og fann þennan bút til að hlusta á:

Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 28.1.2008 kl. 10:18

4 Smámynd: Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir

Önnur tilraun

Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 28.1.2008 kl. 10:19

5 Smámynd: Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir

Þá er það bakdyramegin. Smella hér

Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 28.1.2008 kl. 10:21

6 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Flott ef þú kennir Önnu fluguveiði, hef á tilfinningunni að hún sé meiri svona netmanneskja í dag, vilji almennilegan afla.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 28.1.2008 kl. 16:03

7 Smámynd: Brattur

Helena... það er stór partur af því að veiða að hlusta á náttúruna þegar maður veiðir... oft gleymir maður sér við að horfa á t.d. Óðinshanapar eða Straumendur synda hjá...

Ólöf... ég náði ekki að hlusta á tónaflóðið, er í vandræðum með að láta þessar græjur hlýða mér...

Þorsteinn...  já... kannski er hún Anna þannig, en meiningin er að breyta því, setja litla púpu á endann á flugulínunni og sjá hvað gerist... það er ekki magnið eins og þú veist sem skiptir máli... aðalatriðið er að hafa stíl og look...

Brattur, 28.1.2008 kl. 19:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband