Pípari í basli

... ég komst að því í dag að ég er lélegur pípulagningarmaður... ég keypti tvenn blöndunartæki í morgun... önnur áttu að fara í eldhúsvaskinn og hin í þvottahúsið...

... ég er eiginlega ekki þessi handlagna týpa... 

... jú, jú... þetta byrjaði mjög vel... ég skreið inn í eldhúsvaskaskápinn og byrjaði að skrúfa gömlu tækin í sundur... ég mundi til allrar lukku eftir því að skrúfa fyrir vatnið... inn í skápnum var þröngt að athafna sig og maður allur í einni beyglu...en eftir að hafa ná öllu gamla draslinu í sundur, þá tók við að setja það nýja í staðinn...

.

water

Gekk í raun betur en ég þorði að vona og það var rosalega stoltur strákur sem kom út úr skápnum eftir að hafa verið þar í einn klukkutíma eða svo... horfði á nýju tækin og skrúfaði frá... unun að horfa á heita og kalda vatnið renna og svo var hægt að blanda og fá volga bunu...vá, hvað ég var klár...

.

8000090

.

... þá var að taka næsta blöndunartæki sem átti að fara í þvottahúsið... tók það upp úr kassanum, en viti menn... þetta var þá tækið sem átti að fara í eldhúsið... urrggggggg.... ég þurfti því að fara í annað sinn inn í vaskaskápinn og taka röngu tækin í burtu og setja þau réttu í staðinn... ég var sem sagt kominn í kuðung inn í skápinn aftur...

... en eftir puð og streð tókst að skipta um þessi tæki...

... og aftur kom ég aðeins minna stoltur út úr skápnum... og skrúfaði frá... en... sjitt... kalda vatnið bunaði út þar sem kraninn var merktur rauður...

...  í þriðja skiptið skreið ég inn í þennan litla skáp og breytti köldu vatni í heitt og öfugt...

... ég er að spá í að setja blöndunartækin í þvottahúsið bara á morgun...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

EN skapar ekki æfingin meistarann ?

Brynjar Jóhannsson, 26.1.2008 kl. 18:31

2 Smámynd: Brattur

... jú, það held ég Brylli... verð útskrifaður annaðkvöld...

Brattur, 26.1.2008 kl. 18:47

3 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Hahahahahaha... velkominn í klúbbinn.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 26.1.2008 kl. 19:58

4 identicon

Mikið áttu gott að hafa þessa hæfileika!  Ég rétt svo get skipt um ljósaperu hjá mér ...

Maddý (IP-tala skráð) 26.1.2008 kl. 21:19

5 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Maður á brattri uppleið

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 26.1.2008 kl. 21:52

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hvað er eiginlega hægt að koma oft út úr skápnum Brattur? Bara spyr  

Halldór Egill Guðnason, 27.1.2008 kl. 00:10

7 Smámynd: Hugarfluga

Brattur pípari, m'ar!!

Hugarfluga, 27.1.2008 kl. 01:11

8 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Duglegur!

Edda Agnarsdóttir, 27.1.2008 kl. 12:53

9 identicon

Ég setti upp einkasýningu fyrir þig og býð þig velkominn að skoða ...

Maddý (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 13:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband