Harðfiskurinn - sönn saga

... nú kem ég hér með sanna sögu... sem getur þó aðeins verið færð í stílinn...

... eins og allir vita má hvergi reykja innanhúss í dag... fólk hímir í ýmsum skotum og húsasundum að sjúga rettuna, eða fer út á svalir heima hjá sér til að fá sér smók...

... nú er í uppsiglingu nýtt vandamál... HARÐFISKUR...

Kunningi minn er í vanda... honum þykir harðfiskur góður, en hann má ekki borða hann heima hjá sér!

Af hverju ekki? ... jú, konan hans þolir ekki harðfisklykt... á þessu heimili er því ekki borðaður harðfiskur... nema í laumi...

Um daginn fór konan hans í saumaklúbb. Vinurinn hugsaði sér gott til glóðarinnar og keypti sér harðfiskpakka og smjör...

Hann klæddi sig í kuldagallann, tók með sér stól, bjór, harðfisk og smjör... og settist út á svalir... hann naut þess að háma í sig harðfiskinn með miklu smjöri og sötraði bjórinn með... ummm hvað þetta var gott...

.

2005-06-03-014%20(2)

.

Þegar hann var búinn að éta eitt kíló af harðfiski og smjörið var búið og þrír kaldir bjórar lágu í valnum... Þá henti hann kuldagallanum í þvottavélina, peysunni, nærbuxunum og sokkunum... síðan fór hann í sturtu og þvoði hárið með Nivea sjampói... tannburstaði sig fjórum sinnum með Colgate Sensitive... og skvetti á sig gömlum rakspíra...

... hann sat í sófanum og drakk kaffi og las Moggann þegar konan opnaði dyrnar...

..hæ, skan... sagði hann hlýlega og horfið rannsakandi á hana... hún svaraði ekki kveðju hans, heldur fitjaði upp á nefið og öskraði;

Varstu að éta harðfisk hérna inni, Þrööööstur??????

....úpps, nú missti ég nafnið á manninum út úr mér... þar fór í verra,
þar sem þetta er sönn saga... vonandi lesa hjónin ekki þessa færslu...

... síðan var Þröstur greyið barinn andlega eins og harðfiskur það sem eftir lifði kvölds...

... og eitt er víst, vinur okkar mun aldrei borða harðfisk heima hjá sér framar... hvar endar þetta eiginlega???

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Og ég sem hélt að ég ætii einn við þetta vandamál að glíma! Ef til vill ráð að kanna með stofnun þrýstihóps eða hagsmunasamtaka harðfiskaðdáenda? Ertu með Brattur, eða er þetta ekki vandamál hjá þér eins og hjá okkur Þresti?

Halldór Egill Guðnason, 25.1.2008 kl. 09:09

2 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Finnst Íslenskir karlmenn vera orðnir svona kattarklóruprik að mati kvenna, svo er bara að bíða af sér klórið og mala á eftir.

Ættum kannski að stofna Íslensku harðfisks mafíuna, hittast í leynum og eta harðfisk.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 25.1.2008 kl. 11:08

3 Smámynd: Brattur

... já, strákar, kannski er ráðið að stofna leyniharðfiskklúbb... annars á ég ekki við þetta vandamál að stríða... hér horfum við skötuhjúin saman á enska boltann, maulum harðfisk og drekkum kaldan með... ég er í góðum málum trallalalala....

Brattur, 25.1.2008 kl. 16:25

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Anna Einarsdóttir, 25.1.2008 kl. 20:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband