Ég er barnalegur

... .það eina sem er betra en brauðsneið með hunangi, eru tvær brauðsneiðar með hunangi...sagði Paddington bangsi á sínum tíma... þetta er eiginlega uppáhaldsbrandarinn minn og flestir þeir brandarar sem ég hef gaman af, eru svona barnabrandarar...

... mikið var Guð góður að gefa okkur vatnið, því ef við hefðum ekki haft vatnið, þá hefðum við ekki getað lært að synda og þá hefðum við öll drukknað...

... ég hef sem sagt komist að því að ég er barnalegur... en líklega hafið þið nú bloggvinir og lesendur tekið eftir því fyrir löngu...

... mér finnst gaman að horfa á fótbolta, en ekki hvaða fótbolta sem er... ég horfi eiginlega bara á leiki með Manchester Unided... þá gleymi ég mér alveg... stekk upp úr sófanum og hrópa YESSSS, þegar mínir menn skora... eða gríp um höfuðið og reiti hár mitt þegar illa gengur, en það er sem betur fer mjög sjalgæft... Untied eru svo góðir... svona hegðun fyrir framan sjónvarpið er kannski ekkert mjög fullorðinsleg...

... þegar United vann frækinn sigur á Bayern Munchen árið 1999, þá reyndar fór allt á hvolf hjá mér... við feðgarnir vorum að horfa saman... báðir United menn að sjálfssögðu og Ole Gunnar skorðaði sigurmarkið, við stukkum upp úr sófanum... og öskruðum YESSSSSSSSSSSSSSSSSSSS, dönsuðum um allt stofugólfið og gáfum fimm þar til blæddi úr lófum... hundurinn rak upp gól og faldi sig undir borði, kötturinn stökk út um glugga, lítið barn sem var statt á heimilinu, hafði verið sofandi en  vaknaði við lætin og fór að háorga... eiginlega öskra... enda alveg tilefni til, markið var flott og Evrópumeistaratitilinn í höfn...

... en mikið rosalega var þetta gaman... ég hef því ekki gert neitt sérstak í því að hafa gaman að einföldum hlutum... ég ætla bara að halda því áfram... vera bara barnalegur fram í rauðan dauðann....

... eitt að lokum... ég er enn að finna límmiða á skrokknum á mér... í morgun fann ég límmiða með nr. 16 á... síðast var það nr. 8... 2x8 = 16... hvaða númer skildi koma næst og hvaða skilaboð er eiginlega verið að senda mér...???

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hættu að borða Brattur... HÆTTU STRAX ! 

Þú ert kominn í helmingi stærra númer en í síðustu viku !!!

Anna Einarsdóttir, 22.9.2007 kl. 17:19

2 Smámynd: Hugarfluga

Hahaha ... þú ert óborganlegur!

Hugarfluga, 22.9.2007 kl. 19:00

3 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Barnið vex en brókin ekki.

Brattur minn, ertu ekki hættur að stækka.

Ég þurfti því miður ekki að stökkva upp úr sófanum í dag, engin mörk voru skoruð á Anfield.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 22.9.2007 kl. 19:36

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Áttan er greinilega happatalan þín! Allur að hressast og farin að blogga upp á hundrað. Smjúts á þig.

Edda Agnarsdóttir, 22.9.2007 kl. 23:33

5 Smámynd: Marta B Helgadóttir

ha ha ha frábær

Marta B Helgadóttir, 23.9.2007 kl. 00:44

6 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Vegir guðs eru órannsakanlegir....!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 24.9.2007 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband