Hinu megin

Ég var að uppgötva það rétt í þessu að báðir eða bæði geta ekki verið hinu megin. Ég hef alla ævi verið haldinn þeirri ranghugmynd að þetta væri hægt.

Hinn verður að vera hérna megin, þá getur þetta alveg gengið. Þið skuluð prufa það heima hjá ykkur og þá helst í eldhúsinu. Munið bara að slökkva á hellunum fyrst.

Ef að annar er hinu megin, þá er hinn hérna megin. Það er eiginlega út á það sem þetta gengur.

Svo má einnig í þessu samhengi einnig minnast á þá sem geta verið vitlausu megin en þá þarft þú að vera öðru megin til að geta séð það.

Brattur, góður báðum megin.
.

smiley-confused

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Nú ertu búinn að éta of mikið af Homeblest kexi!! Þú veist að það er best, báðum megin, eða er það ekki? Maður þarf ekkert að fara inn í eldhús til að tjékka á því.;-)

Halldór Egill Guðnason, 19.7.2010 kl. 01:42

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

víst geta báðir verið hinum megin, en þó ekki á sama tíma og alls ekki báðum megin. það fer allt eftir eigin staðsetningu hvort aðrir eru hérna megin eða hinum megin. málið bara að lalla sér milli þeirra á víxl. þá eru þeir hérna megin og hinum megin á víxl.

Brjánn Guðjónsson, 19.7.2010 kl. 19:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband