Af Páli Sófussyni og Óla Þorsteins

Hunangsflugan átti heima í Reynitrénu rétt hjá kartöflugarðinum.

Í kartöflugarðinum var borg ánamaðka.
Þar giltu engar umferðareglur og enginn vissi hvað snéri fram eða aftur.

Svo fór að rigna. Ánamaðkarnir skriðu upp úr blautum holum sínum. Þá komu þrír hettumávar og átu þá alla.

Hettumávarnir flugu síðan í burtu. Þeir hefðu aldrei komið við sögu ef ekki hefði rignt.

Hunangsflugan hefði heldur ekkert komið við sögu nema af því að hún átti heima rétt hjá kartöflugarðinum.

Þessi saga hefði ekki orðið neitt, neitt nema af því að Óli Þorsteins plantaði Reynitrénu fyrir tuttugu og sjö árum og Páll Sófusson stakk upp kartöflugarðinn ellefu árum síðar.
.

hettumafur

.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég er 'klikk'.

Ég viðurkenni fíkn í örzögur þínar...

Steingrímur Helgason, 26.5.2010 kl. 22:25

2 Smámynd: Brattur

Steini, það er því miður ekki til nein meðferð við þessu

Brattur, 26.5.2010 kl. 23:45

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ég var hins vegar að spá í maðkana. Er virkilega enginn eftir og við á leið í veiði?

Halldór Egill Guðnason, 28.5.2010 kl. 03:40

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ég meina, við fluguveiðar eru yfirleitt báðar hendur í gangi, en með maðk er hægt að útbúa "letingja" og sinna rauðvíninu aðeins betur;-)

Halldór Egill Guðnason, 28.5.2010 kl. 03:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband