Tölurnar duttu.

Ég var að grobba mig um daginn að hafa fest tölur í buxur. Það hefði ég ekki átt að gera.
Ég mátti vita að Guð fylgdist með mér og myndi stríða mér á þessu og sýna mér í leiðinni hvað ég væri ófullkominn.

Nú eru tölurnar dottnar af báðum buxunum, þeim brúnu og þeim gráu.

Mikið rosalega er ég spældur... ég sem vandaði mig svo mikið.

En eigum við ekki bara að kenna tvinnanum um ?

Nú ætla ég að fara í veiðidótið og ná mér í girni.  Ætli það sé ekki alveg skothelt ?

Skoðum að lokum hvað G.E. Hannesson segir um þennan dag:

Þessi dagur kemur aldrei aftur og það sem þú gerðir ekki í dag verður kannski aldrei gert.
.

 img-thing?

.

Best að drífa sig út með ruslið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það skyldi þó  aldrei vera að þetta séu Dressmann brækur?  Þá kemur vandamálið ekki á óvart.  Þeir hafa ekki enn lært að festa tölur.

...Eða ertu kannski að reyna að troða björgunarhringnum ofan í strenginn?

Jón Steinar Ragnarsson, 27.3.2010 kl. 10:29

2 Smámynd: Brattur

Nei, Jón Steinar... þetta er eiginlega svona múltí buxur... hægt að breyta þeim í stuttar og langar eftir þörfum... rosa græjur... Dressmann kemur hér hvergi nálægt... ja það gæti svo sem verið að björgunarhringurinn sé sökudólgurinn... en ég vil nú samt ekki viðurkenna það svona opinberlega

Takk fyrir innlitið.

Brattur, 27.3.2010 kl. 11:42

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Madur á ekki ad leika sér ad tolum Brattur. Sjádu bara hvad helvítis útrásarvíkingarnir komu okkur í. Seturdu bara ekki "franskan" í stadinn? Annars eru thessar"multí" braekur alveg stórsnidugar. Ég er reyndar langt kominn med ad hanna alveg nýtt módel, sem er haegt ad nota allt frá thvi ad vera vodlur og í thad ad vera naerbuxur. Ég sýni ther thaer í veiditúrnum. Er annars eitthvad ad frétta af vaentanlegum veidistad? Búinn ad hnýta mér eina flugu fyrir ferdina sem ég kalla morgaes. Thu verdur eiginlega ad finna á thar sem eru svolítid stórir fiskar. Ég er ekki viss um ad einhverjir tittir nái ad torga henni og hraeddur um ad hún sleppi ekki med mér sem handfarangur thegar ég kem heim í maí.

Annars bestu kvedjur hédan ad sunnan í Borgarnesid.

Halldór Egill Guðnason, 27.3.2010 kl. 15:55

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það besta við mistök er möguleikinn að læra af þeim. Þetta gengur bara betur næst.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.3.2010 kl. 16:16

5 Smámynd: Brattur

Halldór... nú fer ég að skoða veiðistaðinn... er ekki almennilega kominn í gang með það... en mikið djéskotið líst mér vel á morgæsafluguna... verðum að finna almennilegan fiski til að borða hana...

Axel Jóhann... já mistök eru einmitt til að læra af þeim... það eru bara ekki allir sem fatta það

Brattur, 28.3.2010 kl. 22:38

6 identicon

Blessaðar tölurnar..

En spakmælið er gott :)

Sveinn Bj (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 23:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband