Hámark vitleysunnar

Leiksýningin stendur sem hæst.

Eini tilgangur þessa skrípaleiks er að koma Sjálfstæðisflokknum og Framsókn aftur til valda.

Þegar það hefur tekist munu þeir flokkar samþykkja Icesave eins og ekkert sé. Síðan munu þeir reyna að bregða fæti fyrir rannsóknarnefndina um bankahrunið, því þeir óttast þau tíðindi sem frá þeirri nefnd er að vænta.

Að hleypa þessum flokkum aftur að valdastólum er eins og að láta þekktan innbrotsþjóf hafa lykilinn að húsi sínu og biðja hann að gæta þess.


mbl.is Afhenda forseta undirskriftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert brattur

Vilhelm (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 12:10

2 identicon

Hefði þá ekki verið sniðugra hjá þessari ríkisstjórn að leyfa Sjálfsstæðisflokknum og Framsókn að koma að gerð þessa samnings, svo ríkisstjónarsamstarfið réðist ekki á því hvort þessi samningur væri samþykktur eður ei? Ég vill hvorki Framsókn né Sjálfsstæðisflokkinn í ríkisstjórn, en það gefur Samfylkingunni og VG ekki mitt leyfi til að haga sér hvernig sem þeim sýnist, því þá fer ég að líta á að fyrirgefa fyrr heldur en ég hafði planað.

Sem kjósanda VG finnst mér engin ríkisstjórn, jafnvel sú sem inniheldur minn eiginn flokk vera mikilvægari heldur en að tryggja áframhaldandi sjálfstæði þjóðarinnar, eitthvað sem ég tel þennan samning ógna gífurlega.

Gunnar (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 12:19

3 identicon

Þú sem sagt telur þig gáfaðri en 25% kosningabærra Íslendinga.

LA (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 12:44

4 identicon

svona svipað og þegar steingrimur var að borga hyskinu til að vera að berja potta og pönnur

ingvar (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 12:52

5 identicon

25% kosningabærra? Þar á meðal er nafn 3ja ára stráks sem ég þekki. Hvenær fékk hann kosningarétt?

"Undirskrifta" safnanir á Netinu eru ekki marktækar. Hafa aldrei verið og munu aldrei verða.

BR (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 13:03

6 Smámynd: Brattur

LA; Ég er nú ekki gáfaðri en það að ég skil ekki athugasemd þína. Hvað koma gáfur mínar málinu við ?

Brattur, 2.1.2010 kl. 13:07

7 identicon

Nú er bál á Bessastöðum. Veistu, ég held að ég sé sammála þér og stjórnarandstaðan hefði aldrei, aldrei sett þetta mál í þjóðaratkvæðagreiðslu ef þeir hefðu verið við stjórn!

Merkúr (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 13:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband