Babb

Þá er komið að endurflutningi úr sögusafni Bratts: 

 

... einu sinni var skip á veiðum... þetta var lítið skip... kallað trillubátur...

... um borð voru fjórir karlar... þeir voru á handfæraveiðum...

.

fosh-fishing-boat-small

.

... sá fyrsti sem dró fisk, kallaði; það er kominn þorskur í bátinn...

... sá næsti horfði á fiskinn sinn og kallaði; það er komin ýsa í bátinn...

... þriðji, talsvert nefmæltur; það er kominn steinbítur í bátinn...

... fjórði, kallaður Óli Búll hrópaði; það er komið Babb í bátinn...

.

 fish_trois_quart.jpg151E4220-F73E-043F-F242D7D027402A49.jpgLarge

.

... félagarnir snéru sér við... og það var ekki um að villast... það var komið
rosalegt Babb í bátinn... váááááá...

Svo settust þeir allir niður, tóku upp nestið sitt, kaffi, smurt brauð með eggi og lummur og horfðu á Babbið allan kaffitímann...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Abba babb og sussum svei,

synd að veiða þetta grey.

kv,

Svanur Gísli Þorkelsson, 15.2.2009 kl. 16:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband