Inspector Clueso kveður árið

Ég kveikti á gömlu Gufunni áðan. Þar var verið að lesa veðurfréttir.
Mér fannst í fyrstu að þetta væri hann Björn Bjarnason (Inspector Clueso) að lesa. En áttaði mig fljótlega á því að þetta væri ekki Inspectorinn.

Eftir þetta litla áfall sem ég varð fyrir, fyrir framan útvarpið sá ég heiminn allt í einu í nýju ljósi. Eins og þegar maður sér hver eru aðalatriðin í lífinu og hvað er það sem skiptir engu máli. Svona upplifun verður maður bara fyrir þegar maður verður fyrir áfalli. Og vissulega er það mikið áfall þegar maður heldur að Björn Bjarnason sé farin að lesa veðurfréttir. Hvað næst... gæti maður séð Hannes Hólmstein keyra strætó, Davíð Oddsson hlaupa í Gamlárshlaupinu og Geir Haarde fylgja í humátt á eftir á þríhjóli?
.

 helmet

.

Ég áttaði mig á því að Björn Bjarnason skiptir mig engu máli.... ég meina það er fullt af fólki að böggast í honum og ég er bara kátur með það... það er líka fullt af fólki að böggast í öllum hinum og ég er bara kátur með það líka... ég bæti engu við þó ég gæti smá böggast í þessum lúðum líka...  það er heldur ekki mín sterkasta hlið að böggast...

Um hver áramót gerir maður sér grein fyrir því að tíminn sem manni var úthlutað styttist og styttist... Hefur verið gerð stytta af tímanum?

Þess vegna á nýju ári ætla ég að reyna að vera ekki mikið pirraður yfir leiðinlegu fólki... mér finnst tíminn alltof dýrmætur til þess... fyrir utan það að ég fæ alltaf verk undir hægra herðablaðið þegar ég verð pirraður...

2008 var rosalega gott ár hjá mér... þar sem gleðin ein réð ríkjum... sól og sumarylur... ekki síst í Egyptalandi þar sem við þeystumst um á Úlföldum í eyðimörkinni eða lágum marflöt á sundlaugarbakka og gleymdum stund og stað. River rafting þar sem ég lenti undir bátnum og vissi ekki hvort ég kæmi nokkurn tímann upp aftur situr einnig í minninu... og svo allar góðu stundirnar í daglega lífnu sem ég átti með þeirri sem skiptir mig mestu... þar sem litlu atriðin verða stór, verðmæt og ógleymanleg...
.

 camel-info0

.

Mörg skemmtileg plön hafa verið gerð fyrir árið 2009 - ekkert nema spennandi tímar og skemmtilegir framundan... það verðu gaman að fylgjast með litla runnanum okkar sem við settum niður í sumar... við ætlum að setja kartöflurnar "aðeins" fyrr niður í ár (fóru niður í júlí síðast!)... það er svo margt sem hægt er að moða úr... þetta er eins og að vera með fullan dótakassa fyrir framan sig...
.

 Clueso

.

Moggabloggsmenn eru ekki sáttir með nafnið mitt og vilja að ég kalli mig eitthvað allt annað eftir áramótin. 
Ég er heldur ekki sáttur við nafnið á Mogganum. Mér finnst að Morgunblaðið eigi að heita Hafsteinn frá Harmi.

Einu sinni var hattur
hann var ekki mattur
Við eiganda hans
Sagði Mogginn stans
Þú mátt ekki heita
Brattur.

GLEÐILEGT ÁR!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Með ósk um gleðilegt og Bratt ár framundan - uppá við

Ásgeir Kristinn Lárusson, 31.12.2008 kl. 17:00

2 Smámynd: Einar Indriðason

Gleðilegt nýtt ár, Brattur sem vill ekki vera Hattur, né Skattur, né... hmm... Flattur?  Hvað fleira rímar? :-)

Einar Indriðason, 31.12.2008 kl. 17:22

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Gleðilegt ár Brattur! Í mínum huga verður þú alltaf Brattur

Hrönn Sigurðardóttir, 31.12.2008 kl. 21:33

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þetta er ekkert mál Brattur minn. Þú breytir nafninu bara i Aflíðandi Bestu nýársóskir héðan af "Flammastöðum" til þín og allra þinna með þökk fyrir allt sem er liðið og eftirvæntingu um það sem framundan er. Það verður á Brattan að sækja í þessu nafnamáli hjá Mogganum, eða er það ekki? 

Halldór Egill Guðnason, 1.1.2009 kl. 13:13

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Mogginn lýgur vízd sem DéWaff, þú ert enn 'Brattur' fyrir mér.

Steingrímur Helgason, 3.1.2009 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband