Sameining

... skrítið orð, brúðkaup... líklega einhver gáfuð skýring til á því... en er brúðurin að kaupa brúðgumann , eða öfugt... hmm...

... þyrfti að finna upp betra nafn á þessa athöfn... sameining... t.d. hvað segið þið um það...

... við ætlum að sameinast í sumar... viltu gera mér þann heiður að koma í sameininguna mína... myndi þá vera sagt...

... og presturinn segði, vilt þú Gunnmundur sameinast Gunnmundu og öllu hennar hafurtaski...

...  Gunnmundur svaraði að bragði, "sameinuð stöndum vér, búum til skyr og strokkum smér"...

... svolítið öðruvísi... ekki satt?

.

 wedding

.

 


mbl.is Júlí mánuður brúðkaupa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Indriðason

Svo er það þetta:  "Sameinuð stöndum við, sundruð föllum við".  :-)

Einar Indriðason, 20.7.2008 kl. 12:32

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ertu að fara gifta þig kallinn?

Edda Agnarsdóttir, 20.7.2008 kl. 13:59

3 Smámynd: Brattur

... Edda mér datt bara þessi hugleiðing í hug af því að ég var í brúðkaupsveislu í gær og svo var þessi frétt um að júlímánuður væri vinsælastur hjá fólki að gifta sig...

Brattur, 20.7.2008 kl. 14:14

4 Smámynd: Marta Gunnarsdóttir

Og svo þegar fólk fer í kirkju til að vera viðstatt giftingar þá er því skipað niður á bekki eftir kynjum og hjónum þar með stíað í sundur af sama hugarfari og felst í orðinu brúðKAUP .... Ruglað að mínu mati.

Marta Gunnarsdóttir, 20.7.2008 kl. 19:01

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Músarlimir í nágrenni mínu gætu kallað þetta 'Geitlát' þar sem að í þeirra menníngarheimi tíðkast gjarnan að láta eina góða geit fyrir eitt misfrítt konudýr.

Steingrímur Helgason, 20.7.2008 kl. 20:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband