Dansað á bombólum

... ég var að koma frá Húsavík... var þar í dag að vinna... þar standa yfir Mærudagar, en Mæra er orð sem þýðir sælgæti á þessum slóðum....

... það minnir mig á það, að þarf sem ég ólst upp voru notuð orð sem ekki þekktust annars staðar... dæmi:

Blink = spúnn - ég heyrði ekki orðið spúnn fyrr en ég var orðinn unglingur

Bombólur = það voru svona bomsur sem var hægt að óla að ofan og þrengja svo ekki færi t.d. snjór ofan í þær.

... þegar ég var á Bifröst fyrir langalöngu... þá gáfum við út ljóðabók ég og vinur minn... bókin sú hlaut nafnið: Dansað á bombólum.

Hún var gefin út í einu eintaki og ég held að vinurinn eigi hana ennþá.

Ég held ég muni ljóði:(þetta er nokkurs konar skólaljóð)

Snigill bjarmans
leggur rúllutertuna í einelti
fór afi þinn í berjamó?
 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Við Skjálfandaflóa er skaplegt að búa


skarta þar Kinnarfjöll herlegri flík


þér segi ég vinur og því máttu trúa


það er blómstrandi mannlíf á Húsavík.



Viðlag:


Náttfara langaði að vera hér lengur


líklega var þetta öðlings drengur.



Garðar í árdaga gekk hér á land


og gerði sér fyrsta húsið á Fróni


enga þó tryggð við ættlandið band


enda var þetta sænskur dóni.


Viðlag:


En - Náttfara langaði að vera hér lengur


líklega var þetta öðlings drengur.

Skál:

Ásgeir Rúnar Helgason, 25.7.2007 kl. 21:20

2 Smámynd: Brattur

... þetta er flott, Ásgeir... það var allt iðandi af mannlífi á Húsavík í dag... alltaf finnst mér skemmtilegt að koma þarna...

Brattur, 25.7.2007 kl. 21:35

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Og fór hann í berjamó ?

Anna Einarsdóttir, 25.7.2007 kl. 22:14

4 Smámynd: Brattur

... já, og síðan hefur aldrei til hans spurts...

Brattur, 25.7.2007 kl. 22:17

5 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Náttfari fór í berjamó. Hann tók með sér gamla og slitna skó. Vissi ei hvað í fjöllunum bjó. Fullur af ró, Náttfari hló. Aldrei hann hefur aftur þó, komist í Náttfaravíkur. Í dag eru þar bara djöflar og dónar og helvítis píkur:

Ásgeir Rúnar Helgason, 26.7.2007 kl. 20:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband