Hundsvit

Ég var orðinn hálf hræddur um að Je Nes Sais Quoi myndi bara rústa keppninni... það hefði orðið persónulegt áfall fyrir mig því ég var aldrei ánægður með lagið... finnst það hálfgert Júrukúlupopp... en Hera gerði lagið í raun betra en það er með mjög góðum flutningi.

Í Júrovisionpartíi fjölskyldunnar veðjaði hver og einn á lag.

Engin spáði Þýskalandi sigri... en tíkin hún Femína sagði að Tyrkland myndi vinna. Hún tjáði sig um það með því að dilla skottinu meira, já miklu meira en þegar önnur lög voru flutt.

Tyrkland varð í öðru sæti svo Femína vann keppnina hérna í Mávastellinu.

Við hin urðum að bíta í það súra epli að hafa ekki hundsvit á lögunum.
.

_korfu

.

Hér er svo sigurvegarinn morguninn eftir, hálf dösuð eftir nóttina en alsæl eins og fegurðardrottning eftir krýningu.

 


mbl.is Svona er þetta bara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

já blessaðir hundarnir, þeir geta verið skemmtilegir og alltaf jafn gaman þegar þeir taka virkan þátt í heimilislífinueða bara því sem maður er að brasa hverju sinni :)

Sveinn Bj (IP-tala skráð) 31.5.2010 kl. 23:08

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Erum við að fara í veiði eða ekki?

Halldór Egill Guðnason, 2.6.2010 kl. 05:24

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Og hundurinn er yndislegur..................................

Halldór Egill Guðnason, 2.6.2010 kl. 05:25

4 Smámynd: Brattur

Halldór... ég er að vinna í þessu... þetta endar með veiði !

Brattur, 2.6.2010 kl. 07:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband