Stjórnarbylting

Það er greinilega orðin stjórnarbylting á Íslandi. Forsetinn ræður yfir ríkisstjórninni og segir bara og gerir ALLT sem honum sýnist.

Á erlendri grundu og í erlendum fjölmiðlum talar hann og hegðar sér eins og sá sem valdið hefur. Mér sýnist hann líka vera farinn að trúa því sjálfur að hann stjórni Íslandi einn en ekki Alþingi eða ríkisstjórn.

Eigum við ekki að fara að setja kallinn með ljósu lokkana í þjóðaratkvæðagreiðslu ?
.

monkey-thinking

.


mbl.is Óábyrgt að draga fjöður yfir goshættuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Afsakið. Síðan hvenær var forseti EKKI sljálfstæður aðili í Lýðveldinu? Honum ber ekki skv. stjórnarskrá að lúta vilja ríkisstjórnar. Hann er þjóðkjörinn.

Ég sé ekki að hann sé að reyna að stjórna neinu, enda ekki í hans verkahring skv. stjórnarskrá. Hann talar sjálfstætt eins og honum ber. Ég vildi nú ekki sjá forseta lúta vilja ríkisstjórnar í öllu og tala sig saman við hana.. Það er ekki í hans verkahring.

Kanski sniðugt að fólk hafi grundvallarskilning á embætti forseta áður en það hrópar "bylting" því að það sem fólk talar um að hann "ætti eða ætti ekki" að gera og "sé í hans verkahring eða ekki" VÆRI raunveruleg stjórnarbylting. Vill einhver forseta sem hringir í ríkisstjórn í hvert sinn sem hann fer í viðtal og þegir um það sem hann veit frá vísindamönnum eða öðrum þegar spurt er stórt, eða vill ekki tjá sig til að ýfa ekki einhverjar fjaðrir? Úff je minn. Hvað er fólk að hugsa?

Þorbergur (IP-tala skráð) 20.4.2010 kl. 20:43

2 Smámynd: Brattur

Þegar forsetinn er farinn að tala og hegða sér eins og einræðisherra, þá er eitthvað að.

Brattur, 20.4.2010 kl. 20:54

3 identicon

Ég horfði á þýskann þátt á ARD í fyrrakvöld og þar var þýskur jarðfræðingur sem sagði nákvæmlega það sama og forseti vor. Hann sagði reyndar líka að ef fólk færi í frí á eldfjallaeyju væri alltaf hægt að búast við gosi og að Katla hefði getað gosið í fyrra eða hitteðfyrra, og að kannski kæmi hún á næstunni... eða næsta ár.

Ég held að sjónvarpsstöðvar um allann heim séu með þessar sömu fréttir, hver á sínu tungumáli. Hvað skal gera? Sauma fyrir munninn á öllum jarðfræðingum plánetunnar? Þetta er ekki eitthvað sem Ólafur einn hefur sagt, heldur er þetta aðal umræðuefnið á allri plánetunni þessa dagana

anna (IP-tala skráð) 21.4.2010 kl. 11:53

4 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

læsum alla gapuxana inni. Dabbi sagði að hér væri góðæri. ég vil lifa í afneituninni.

Brjánn Guðjónsson, 22.4.2010 kl. 11:44

5 Smámynd: Brattur

Er ekki betra að vísindamenn tjái sig um eldgos heldur en forsetinn ? ÓRG er að mínu mati að taka sér stærra og stærra hlutverk og kemur fram í erlendum fjölmiðlum eins og æðsta vald landsins... um það snýst málið...

Gapuxarnir munu að lokum fá sinn dóm og sína refsingu... en það mun samt aldrei laga það sem þeir gerður þjóðinni... gæti samt orðið fróðlegt að sjá hverjir verða klefafélagar... væri ekki t.d. fín refsing að DO og JÁJ... yrðu saman í klefa  

Brattur, 22.4.2010 kl. 14:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband